Fyrsti apríl
Ákvað svona í tilefni dagsins að skella fá mér bloggsíðu. En annars var þetta ósköp venjulegur dagur hjá manni, vaknaði ömurlega snemma í skólan og þurfti síðan að vaða krapið í ökla til að komast í strætóinn. Annars var ég að velta því fyrir mér í dag hversu léleg aprílgöbbin eru orðin hjá fjölmiðlum þessa lands, kommon, Elvis vaknaði í frystigeymslu í Sviss og verður með tónleika í Ölveri í kvöld, hver á að trúa þessu. Allavega, ég ætla að segja þetta gott í bili, lifið heil
<< Heim