Páskar, páskar, páskar
Jæja, þá er maður staddur heima í sveitinni, hef ekki getað skrifað lengi vegna þess að tölvan sem er hérn komst ekki inn á síðuna einhverja hluta vegna. En mikið var það gott að komast úr stressinu í bænum og koma hingað norður, hef haft það rólegt, eiginlega of rólegt. Ég fór með flugi norður og mér leist ekkert á blikuna þegar vélin var að lenda á Akureyri því hún lét eins og einhver hefði gripið um hana og hrist af öllu afli. En vélin lenti allavega heilu og höldnu (annars væri ég varla að skrifa þessi orð).
Ég ætla að hætta þessu bulli í bili og óska öllum gleðilegra páska og vona að engin éti yfir sig af páskaeggjum.
Ég ætla að hætta þessu bulli í bili og óska öllum gleðilegra páska og vona að engin éti yfir sig af páskaeggjum.
<< Heim