20 apríl, 2004

Andvökuhelvíti

Hér sit ég og get ekki sofið, er búinn að liggja og reyna að sofna í meira en tvo tíma. Þetta er ömurlegt, síðan þarf maður að rífa sig upp í fyrramálið og æða í hina títtnefndu borg óttans, byrja að læra undir próf og annað skemmtilegt.
Mig dreymdi síðustu nótt að ég væri kominn til London og væri þar að skemmta mér á fullu en þá kom bin Laden eða eitthvað álíka lið og sprengdi allt í loft upp, þannig endaði síðan þessi draumur. Það er alveg ótrúlegt hvað mann dreymir oft asnalega hluti.
Ég er ekki að fara að nenna í þessi blessuðu próf sem framundan eru, langar bara til þess að fara í sumarfrí og fara að vinna og njóta góða veðursins. En nei, núna taka við þrjár vikur fullar af stressi og of litlum svefn og , semsagt eðlilegur hluti af lífi hins almenna vesturlandabúa.
Jæja, ég held það sé best að reyna að gera aðra tilraun til þess að komast í draumalandið þannig að hér læt ég staðar numið í bili.

© Ísak Sigurjón sá um gerð og kóðun útlits, 2006






Visitor Map
Create your own visitor map!
Myspace Maps
Locations of visitors to this page