24 apríl, 2004

Skítaveður.....

Jæja, þá er maður búinn að næla sér í miða á Metallica tónleikana. Ákvað að skella mér í metallica-klúbbinn til að ná mér í góða miða og maður er því kominn með miða á A-svæðið.
Annars er það helst að góða veðrið er búið og það er farið að rigna aftur, rigndi reyndar líka í gær. Þetta þýðir bara það að veðrið hér í Reykjavík er komið aftur í eðlilegt horf, þeir voru að tala um það í 70 mínútum í gærkvöldi að það væri svo gaman þegar það kæmi svona gott veður því það gerist svo sjaldan, já það gerist svo sjaldan hér í reykjavík.
Nú nálgast prófin með ógnarhraða og er orðið innan við vika í fyrsta prófið, úff úff, maður er orðinn stressaður.

© Ísak Sigurjón sá um gerð og kóðun útlits, 2006






Visitor Map
Create your own visitor map!
Myspace Maps
Locations of visitors to this page