03 maí, 2004

Prófafjandi

Jæja, þá er maður búinn með þriðja prófið af fjórum og þetta var nú ekki glæsilegt skal ég segja ykkur, þá meina ég frammistöðu mína á prófinu. Það var svo skemmtilega mikið að lesa fyrir þetta próf og ég komst því miður ekki yfir það allt saman, en maður verður bara að bíða og sjá hvað kemur út úr þessu. Síðan er síðasta prófið hjá mér ekki fyrr en 13. maí, semsagt ekki næsta fimmtudag heldur þarnæsta.
Annars er nú mest lítið að frétta utan við sögur af prófstressi. Verð samt að segja að ég er farinn að hlakka voðalega mikið til þess þegar sumarfríið kemur. Nóg bullað í bili, farinn.

© Ísak Sigurjón sá um gerð og kóðun útlits, 2006






Visitor Map
Create your own visitor map!
Myspace Maps
Locations of visitors to this page