06 maí, 2004

Duga eða drepast


Það er nú búið að vera frekar rólegt hjá manni í dag, hef bara verið að dunda mér við skemmtilega ritgerð sem ég á að skila í síðasta lagi í fyrramálið þannig að það gæti stefnt í andvökunótt hjá manni. Og, eins og áður hefur komið fram, þá er síðasta prófið hjá manni eftir viku. Ætli maður verði ekki bara rosalega duglegur og lesti extra vel undir þetta próf, maður verður allavega ekki í vandræðu með að lesa allt lesefnið eins og fyrir fyrri próf, þetta eru örfáar blaðsíður, held þær séu varla mikið yfir 200. En ég rakst á alveg hrottalega frétt á mbl.is um mann sem fékk nokkur skot í hausinn úr naglabyssu og lifði það af, eins og sjá má á myndinni hérna þá voru þetta engir smánaglar, nánar um málið má sjá á mbl.is.

© Ísak Sigurjón sá um gerð og kóðun útlits, 2006






Visitor Map
Create your own visitor map!
Myspace Maps
Locations of visitors to this page