14 júní, 2004

Vinnan hafin á ný

Jæja, þá er maður mættur til vinnu aftur eftir þetta svakalega langa frí, nennti varla að fara á fætur og koma mér uppeftir í morgun. Það var svo skemmtilegt þegar ég kom hingað áðan að skemman var orðin næstum full og ég vissi varla hvar ég ætti að láta efnið frá mér en það reddaðist. Annars hringdi Dóra í mig í gær til að láta mig vita af partíplani á miðvikudaginn, ég byrjaði á því að móðga hana með því að þekkja hana ekki í símanum en það er bara eitthvað með mig og að þekkja ekki raddir í síma, ekki spyrja afhverju.
En það er best að koma sér að verki, yfir og út.

© Ísak Sigurjón sá um gerð og kóðun útlits, 2006






Visitor Map
Create your own visitor map!
Myspace Maps
Locations of visitors to this page