08 júní, 2004

Næturvörðurinn heiða...

Nei, næturvörðurinn Gestur.
Allavega þá sit ég hér á seinni næturvakt í vinnunni minni, það þýðir að í fyrramálið, nánar til tekið klukkan hálf 6 bruna ég heim og fer að njóta 6 daga frísins sem ég er kominn í. Annars er allt í klessu hérna í vinnunni, efnið allt meira og minna ónýtt og skemman að fyllast. Síðan var Nonni Bergmann að skoða vaktaplanið benti mér á það, mér til mikillar ánægju, að ég er í fjögurra daga fríi um verslunarmannahelgina, semsagt frá föstudegi til mánudags. Þetta er í fyrsta skipti í nokkur ár sem maður hefur alla helgina fría sem er alveg yndislegt.
Jæja, það er best að halda áfram að sitja í þessari yndislegu pásu og fara um veraldarvefinn Á LAUNUM!!! ;)

© Ísak Sigurjón sá um gerð og kóðun útlits, 2006






Visitor Map
Create your own visitor map!
Myspace Maps
Locations of visitors to this page