no more Reykjavík city, allavega fram að Metallica tonleikunum
Vei, ég er kominn norður og kominn í sumarfrí og alles. Held ég hafi ekki farið svona snemma í sumarfrí síðan..... ég hef bara aldrei nokkurn tíma farið svona snemma í sumarfrí sem gerir tilfinninguna enþá betri. En það var ætt norður í dag og maður er laus úr greipum borgar óttans, verst að það eru ekki komnar neinar einkunnir utan við þessa einu sem kom um daginn þannig að maður getur ekki farið að njóta sumarfrísins til fulls enþá.
En það er svona helst að frétta að Sigurgeir bróðir og Gummi frændi skelltu sér í Evrópureisu í dag, Gummi var svo sniðugur að ná í ódýra miða um daginn á einhverju tilboði hjá express, þeir fara til Englands, Þýskalands og loks Danmerkur. Maður hefði nú ekkert haft á móti því að skella sér í svona ferð en það verður bara að bíða seinni tíma.
En ég held ég segi þetta gott í bili og fari og skríði upp í rúm, góða nótt.

<< Heim