05 febrúar, 2006

Mac is back

Jæja, þá er nýtt útlit komið á koppinn en um leið og það kom þá fór færslan sem ég skrifaði hérna í gær þannig að ég verð bara að skrifa aftur núna. Það helsta í fréttum er að makkinn er loksins kominn úr viðgerð og er búinn að vera duglegur að brenna alla helgina, það var allt að springa úr downloadi hérna. Svo er kominn nýr fjölskyldumeðlimur, fékk nýja ipodin minn í hendurnar núna í vikunni og er ég búinn að setja tæplega 4000 lög inn á hann og samt eru tæp 10 gígabæt eftir af þessum 30 sem hann hefur sem er ekkert nema gott. Næsta vika á eftir að verða áhugaverð, á morgun er ég að fara í atvinnuviðtal. Datt í hug að fá mér smá vinnu með skólanum þar sem ég er bara í tímum þrjá daga vikunnar, Svona til þess að ég grotni ekki úr leiðindum þess á milli. En það kemur allt saman í ljós á morgun. Svo er ætlunin að halda bekkjarpartí hérna um næstu helgi, kemur í ljós hvernig pleisið verður útleikið.

Jæja, nóg í bili

Tschuss

© Ísak Sigurjón sá um gerð og kóðun útlits, 2006






Visitor Map
Create your own visitor map!
Myspace Maps
Locations of visitors to this page