03 júní, 2006

Keilir sigraður

Í dag tókum ég og Jói okkur til og gengum á Keili í frábæru veðri, sólskini og hita. Lagt var í hann frá Reykjavík rétt fyrir 12 og lagt var í gönguna um 1 leytið. Toppnum var svo náð klukkan hálf 3. Uppgangan var nokkuð strembin, sérstaklega undir það síðasta þar sem jarðvegurinn var ákaflega þurr og sendinn en við höfðum þetta af á endanum. Komum við svo aftur að bílnum klukkan 4 og tók fjallgangan því um þrjá tíma í heildina. Hér að neðan má sjá tvo þreytta en ánægða fjallgöngumenn á toppnum. Fleiri myndir má sjá á myndasíðunni minni www.picturetrail.com/gestur

© Ísak Sigurjón sá um gerð og kóðun útlits, 2006






Visitor Map
Create your own visitor map!
Myspace Maps
Locations of visitors to this page