16 júní, 2004

leiðist

Úff, hvað mér leiðist svakalega. Það er allt búið að vera stopp hérna í morgun og ég hélt að maður færi seint að kvarta undan því að það væri of lítið að gera í vinnunni en þetta er orðið of mikið af því góða. Allavega þá er maður farinn að hlakka til kvöldsins þar sem verður djammað og djúsað langt fram eftir nóttu, bara verst að ég held það stefni í að ég þurfi að vinna á morgun. Hins vegar verður að koma í ljós hversu hress ég verð í kvöld þar sem ég svaf bara þrjá tíma í nótt og allt vegna þess hvað ég svaf lengi fram eftir í gær. Síðan er ég búinn að setja inn nýja könnun að gamni og koma svo og taka þátt. Segi þetta gott í bili, skýrsla kemur af djamminu á morgun.

© Ísak Sigurjón sá um gerð og kóðun útlits, 2006






Visitor Map
Create your own visitor map!
Myspace Maps
Locations of visitors to this page