15 júní, 2004

Ótrúleg leti

Núna sit ég hérna nýkominn á vakt og allt er stopp, engin framleiðsla þannig að ég hef ekki hugmynd um hvað ég verð að gera í dag. Vona bara að þeir fari ekki að hlaða á mann einhverjum leiðindaverkum eins og að þrífa skemmuna eða annað álíka. Allavega þá átti ég mjög erfitt með að koma mér á lappir í morgun, komst ekki fram úr fyrr en klukkan 12 á hádegi, slafraði í mig morgunmatnum og var rétt búinn að því áður en ég var sóttur í vinnuna. Ég veit ekki hvernig stóð á þessum svakalega svefni í nótt, fór að sofa á miðnætti og hef því sofið 11 til 12 tíma í nótt. Annaðhvort er ég svona latur eða þá að þetta stafar af því að ég fékk nýtt rúm í íbúðina mína í gærkvöldi sem var miklu skárra en þessi hanabjálki sem ég hef sofið á undanfarið, allavega á maður það ekki lengur á hættu að velta fram úr sökum þess að rúmið sé svo mjótt. En annars vil ég hvetja fólk til að skrifa í gestabókina, hún er frekar tómleg og er mæsa sú eina sem hefur kvittað þar. Síðan er partí ársins á hinn daginn, þann 16. júní. Það verður gaman að hitta þetta lið aftur, hef ekki hitt nema sárafáa þeirra á síðastliðnu ári. Allavega held ég að maður fari að segja þetta gott í bili, farinn.

© Ísak Sigurjón sá um gerð og kóðun útlits, 2006






Visitor Map
Create your own visitor map!
Myspace Maps
Locations of visitors to this page