17 nóvember, 2004

Let it snow...

Jæja, nú er maður aldeilis sáttur við veðurguðina. Það er kominn snjór og það nóg af honum, svona á þetta að vera. Hins vegar fylgja þessu ýmsir ókostir hér í reykjavík, t.d. illa hreinsaðar götur og gangstígar og þessi blessaði saltpækill sem liggur á götunum og vinnur að því að eyðileggja bílaflota reykvíkinga. Hins vegar er það spurning hversu lengi þetta endist og allt verður orðið fljótandi í krapadrullu og ógeði.

Annars var það mikil gleði hjá mér áðan þegar ég sendi einum kennaranum mínum tölvupóst og hann sagði mér að fyrirlesturinn sem ég átti að flytja á næsta föstudag ætti ekki að vera fyrr en á föstudaginn eftir viku, þetta voru einstaklega góðar fréttir, sérstaklega í ljósi þess að ég er varla byrjaður á þessum fyrirlestri. Annars var ég að lesa góða frétt á studentar.is um það að heimskt starfsfólk á vinnustöðum getur verið lífshættulegt fyrir samstarfsfólk þess, úff maður, ég vildi ekki vilja þurfa að vinna í hvíta húsinu eftir að hafa heyrt þetta 0

En þó að þessi fyrirlestur frestist um heila viku þá er það nú samt stefnan hjá manni að klára þetta í tíma, enda nóg annað að gera.

farinn

© Ísak Sigurjón sá um gerð og kóðun útlits, 2006






Visitor Map
Create your own visitor map!
Myspace Maps
Locations of visitors to this page