Aukanæturvakt
Helv..., það var hringt í mig síðdegis í dag og ég spurður hvort ég vildi taka næturvakt í nótt og ég var nú ekkert á því fyrst. Síðan var hringt í mig aftur og kom þá í ljós að ég væri í raun sá eini sem gæti tekið þessa vakt. Þess vegna sit ég hér á næturvakt inni í miðju fjögurra daga fríi. Þó er bót í máli að maður er á yfirvinnukaupi þannig að maður verður bara ánægður með það þegar launaseðillinn kemur. Síðan var ég búinn að setja upp nýja skoðannakönnun um komandi forsetakosningar, bara svona að sjá stemminguna fyrir þessu. Annars segi ég bara góða nótt og góðar stundir.
<< Heim