Öfugsnúinn sólarhringur
Núna sit ég hérna nýmættur á næturvakt númer tvö af þremur í þessari törn og ástæðan fyrir því er sú að það vantaði manneskju á vakt síðustu nótt svo að ég skellti mér bara á hana. Þetta þýðir það að sólarhringurinn hjá manni er svoldið kominn í rugl og þarf ég örugglega að pína mig svoldið til að rétta hann af. Annars var ég að fá tölvupóst frá honum Atla um að hann væri búinn að gera síðu þar sem allir þeir sem voru með okkur í bekk geta sagt frá því sem þeir eru að gera. Ég setti tengil í þessa síðu í tenglalístanum hér til hliðar og mér finnst hann Atli eiga hrós skilið fyrir þessa hugmynd. Annars er það að frétta að stefnan er tekin á Egilshöll í Grafarvogi um næstu helgi, nánar til tekið á Metallica tónleika og á maður ekki von á öðru að þar verði þrusutónleikar á ferð. Annars hef ég ekki meira að segja í bili, yfir og út.
<< Heim