19 júní, 2005

Hey hó og jíbbí jey, það er kominn og farinn 17. júní

Maður fékk þriggja daga helgi í þetta skiptið sökum þess að 17. júní var á föstudaginn. Þá var skundað á Akureyri til að kíkja á stemminguna en veðrið hefði alveg mátt vera aðeins betra. Svo var útskriftarveisla heima hjá Andreu í gærkvöldi þar sem hún var að útskrifast úr MA þann 17. og ég sjálfur víst orðinn tveggja ára stúdent, ja hvað tíminn líður. En ég afrekaði það í gær að fara í bakinu. Ég var að slá garðinn og beygði mig til að losa pokann á vélinni og þá kom þessi líka rosa stingur í bakið á mér og ég hef verið að drepast í bakinu síðan þetta gerðist. Gat varla sofnað í nótt út af þessu helvíti. Vonandi er þetta ekki byrjunin á einhverju verra, vill helst losna við það að lenda í einhverju krónísku bakveseni núna og helst bara fyrir lífstíð. En svo er það bara vinnan í fyrramálið og því fylgir að maður er varla að nenna að hafa sig af stað eins og vill oft verða þegar svona frí eru lengri en venjulega.

Segi þetta gott í bili, svoldið stutt í þetta skiptið en það verður að hafa það

yfir og út.

© Ísak Sigurjón sá um gerð og kóðun útlits, 2006






Visitor Map
Create your own visitor map!
Myspace Maps
Locations of visitors to this page