Prófin eru búin!!!
Ég er búinn í prófum, ég er búinn í prófum, ég er búinn í prófum... hmmm ætli þetta sé ekki gott í bili. En þetta er samt staðreynd sem er svona að síast inn hjá manni þessa stundina, prófin eru loksins búinn og maður er kominn í "sumarfrí." Já, sumarfrí innan gæsalappa því maður byrjar víst að vinna í næstu viku en hey, það er þó ekki heimavinna í vinnunni. En já, nú tekur við mikil vinna við það að laga til eftir sig, íbúðin orðin eins og ruslahaugur eftir þennan prófalærdóm minn þar sem ég hef hent bókunum út í horn um leið og hvert fag hefur klárast. Síðan verður gamna að sjá hvort maður þurfi að taka svo mikið drasl með sér norður að maður fari í yfirvigt í flugvélinni, tja maður spyr sig. En þið sem eruð ekki enþá búin í prófu þá segi ég bara gott gengi.
Held ég segi þetta gott í bili, tiltektin bíður eftir manni. Næsta blog verður örugglega skrifað þegar ég verð kominn norður.
Yfir og út...
Held ég segi þetta gott í bili, tiltektin bíður eftir manni. Næsta blog verður örugglega skrifað þegar ég verð kominn norður.
Yfir og út...
<< Heim