30 júní, 2004

fussum svei

Jamm og jæja, einmitt akkúrat. Nú er ég kominn heim eftir tvöfalda vakt, ekki 2x14 tímar, nei, heldur 17 TÍMAR og ég hélt að ég væri að drepast þegar fór að líða að hádegi. Taldi saman að gamni og fann út að ég er búinn að vinna 78 klukkustundir undanfarna viku. Og en var verið að bæta á mig vöktum, lengi má á sig blómum bæta eins og einhver sagði, í þetta skiptið vinn ég tvöfalt á föstudaginn þannig að þetta tveggja daga frí mitt er orðið að nokkura klukkutíma fríi. Annars verður lítið unnið um helgina og er ástæðan fyrir því títtnefndir tónleikar á sunnudaginn, tókst að fá fólk til að skipta um vaktir fyrir mig þannig að maður er bara í góðum gír. Læt þetta duga í bili, ætla að fara og deyja (úr þreytu).

© Ísak Sigurjón sá um gerð og kóðun útlits, 2006






Visitor Map
Create your own visitor map!
Myspace Maps
Locations of visitors to this page