Something funny
Nú sit ég hérna á næturvakt í vinnunni og horfi á mæla og glápi á sjónvarp, er að horfa á ótrúlega óskemmtilega breska spennumynd í sjónvarpin. Ó hvað ég óskaði þess að það væri stöð 2 í þessu sjónvarpi. Hinsvegar eru gleðifréttirnar þær að á sunnudagsmorgun verð ég kominn í 6 daga frí, veit hins vegar ekki hvað ég geri í þessu fríi en það verður bara að koma í ljós. Íris frænka kíkti hins vegar í heimsókn í dag, familían fór á landrover hátíð í Húnaveri og hún var skilin eftir ein heima. Við hentum brauði í brauðvélina um hádegi og síðan var hún Íris svo gráðug í kaffitímanum að hún át að minnsta kosti helminginn af brauðinu. Jæja, ég er farinn að horfa á þessa frábæru (not) mynd, The Criminal, farinn.
<< Heim