17 janúar, 2005

Niðurstöður prófa og aðrir miður fallegir hlutir...

Var að skoða svæðið mitt niðri í skóla í dag og tók eftir því að síðasta einkunin væri komin. Kom í ljós að ég náði þessu og náði ég því öllum jólaprófunum, húrra fyrir því. En svona eru lokatölur:
Mannkynssaga IV: 7,5
Hitler og Stalín: 6,5
Inngangur að stjórnmálasögu: 7

Þannig að ég er bara nokkuð sáttur 0

Annars er maður allur að skríða saman eftir þessa byltu á föstudaginn. Þorði hinsvegar varla út úr húsi alla helgina vegna þess að bæði bakgarðurinn og bílaplanið litu út eins risastór spegill. Fór einu sinni út í búð á meðan þessu stóð og þurfti að fara þvílíka fjallabaksleið til þess að sleppa þetta standandi í lappirnar. Eyddi því helginni í það að horfa á hina frábæru þætti Band of Brothers, það var tími sem var vel eytt því þarna er á ferðinni sannkallað meistaraverk, held að einkunin 9,5 á imdb.com segi allt sem segja þarf um þessa þætti. Gerði hinsvegar þau mistök að horfa á myndina The Mothman Prophecies aleinn seint á laugardagskvöld, þar sem ég er óttalegur kjúklingur þegar kemur að svona myndum þá var ég orðinn skíthræddur þegar henni lauk 0 og átti erfitt með að sofna á eftir.

jæja, nóg komið af aumingjanum mér, held það sé bara rúmið bráðlega.

P.s. keypti mér annsi merkilegan ávöxt áðan, hann hét dreka eitthvað og kostaði mig hátt í 500 krónur og kílóverðið var 1600 krónur. Hins vegar var bragðið alls ekki í samræmi við verðið 0

© Ísak Sigurjón sá um gerð og kóðun útlits, 2006






Visitor Map
Create your own visitor map!
Myspace Maps
Locations of visitors to this page