Veikindi, smeikindi
Það á ekki af manni að ganga hérna. Fyrst lenti maður í því að fljúga á hausinn í hálkunni og togna, svo er maður orðinn veikur núna, nefrennsli, slappleiki, aumur háls og allt tilheyrandi. Gat svo ekki notað miðana sem ég vann á myndina Alexander sem átti að sýna í kvöld þannig að ég varð að gefa þá. Síðan til að fullkomna allt saman þá er það komið í ljós að ekki er hægt að gera við ferðatölvuna hér á Íslandi, ekki einu sinni í Evrópu, allt út af því að kanadjöflarnir ákváðu að banna viðgerðir á öllum týpum sem seldar eru í landi “frelsisins” utan þess. Það er ekki einu sinni hægt að bilanagreina gripinn hérna og þarf helst að koma henni til Bandaríkjanna til viðgerðar. Helvítis sjálfhverfu heimsku kanahelvíti 0 , maður hafði alveg nægar ástæður til þess að vera illa við þá þó að þetta þurfi ekki að bætast við.
Jæja, það er best að fara og reyna að láta sér batna.
Jæja, það er best að fara og reyna að láta sér batna.
<< Heim