Prófin búin... þvílík sæla
Ó vá, hvað þetta er góð tilfinning. Já, ég er búinn í þessum blessuðu upptökuprófum og þetta er eitthvað sem ég stefni á að endurtaka aldrei aftur. Allavega þá gekk þetta nú svona upp og ofan, prófið sem ég var að koma úr núna rétt áðan gekk vonum framar, ég svaraði 90% af prófinu og þetta gekk alveg glymrandi. Hins vegar er hitt prófið sem ég fór í á mánudaginn síðasta aðeins annað mál, held að það verði eitthvað tæpt. En nóg um það, ég er búinn 0
Núna ætla ég mér að fara upp í Gettó og fara í sturtu, leggja mig og henda bókunum undir rúm þar sem ég læt þær liggja og rykfalla þangað til að skólinn byrjar. Síðan var það planið að fljúga norður annað kvöld og svo er það vinna á mánudag.
Held ég segi þetta gott í bili
ég er farinn að leggja mig,
P.s. Ég varð næstum því vitni að líkamsárás uppi í Gettói, var að labba útí búð í gærkvöldi og sé allt í einu sjúkrabíl vera að bakka á planinu við búðina. Þegar ég kem svo fyrir hornið sé ég mann liggja á stéttinni í blóði sínu og fullt af fólki í kring. Ég fór inn í búðina og spurði stelpuna sem var að afgreiða hvað hafi komið fyrir og þá segir hún að einhverjir strákar hafi barið gaurinn í köku útaf því að hann danglaði eitthvað í bílinn þeirra. Ruglaða lið.
P.p.s. Héðan í frá mun ég kalla Breiðholt Gettó í skrifum mínum.

<< Heim