25 september, 2005

Nýtt útlit

Ég var varla búinn að sleppa orðinu um það að nýja útlitið væri á leiðinni þegar ég hafði samband við Ísak sem sagði mér að það væri mjög lítið eftir af því. Því fórum við bara í það að klára þetta og skelltum því á. Ég verða að segja að ég er mjög ánægður með útkomuna, efa það þó að ég verði jafn aktívur að skipta um útlit eins og Ísak.

Fór í vísindaferð á föstudaginn og var farið í Landsvirkjun. Fengum það sem kallað var léttar veitingar, semsagt bjór og snittur. Svo var haldið niður á uppáhaldsskemmtistað allra, Pravda og vorum við komin þangað um sjö leyti. Ég veit ekki hvað hefur verið að mér en ég var alveg að sofna um tíu leytið og fór bara heim þegar kvöldið var rétt að byrja.
Jæja, gott í bili

© Ísak Sigurjón sá um gerð og kóðun útlits, 2006






Visitor Map
Create your own visitor map!
Myspace Maps
Locations of visitors to this page