09 október, 2006

Kominn tími til

Mér fannst vera kominn tími til að rita nokkur orð á þessa síðu enda er orðin rúmur mánuður síðan síðast. Það er allt við þetta sama hjá manni, er að rembast við að gera ritgerð, það gengur svona upp og ofan, er að vinna aðeins með ritgerðinni, enþá í Elko. Annars verð ég að segja að tíminn er búinn að líða allt of hratt, sumarið þaut hjá án þess að maður áttaði sig á því, það var reyndar ekkert til að hrópa húrra fyrir en það er önnur saga. Það er hinsvegar kominn október og afmælið mitt nálgast óðfluga, jólin koma eftir rúmlega tvo mánuði og verslanir fara að setja upp jólaskrautið bráðlega.

En að öðru, í gærkvöldi fékk Ævar mig til að mæta á sýningu hjá nemendaleikhúsi LHÍ í Borgarleikhúsinu en verkið kallast hvít kanína. Þetta var gjörólíkt nokkru leikriti sem ég hef á ævinni farið á og var viss upplifun. Reyndar var eina hugsunin sem komst að hjá mér fyrstu mínúturnar hvað í ósköpunum fólkið í þessum skóla væri að reykja en svo reyndi maður að hafa gaman af og þegar upp er staðið þá var þetta fínasta sýning.

Undanfarna daga hefur holskefla ruslpósts riðið yfir Gmail-ið hjá mér og eru komin nærri 200 skeyti á rúmri viku við erum að tala um eitt bréf á nærri klukkutíma fresti. Allt eru þetta mjög áhugaverð bréf frá margvíslegu fólki, t.d, Wilson Guevara, Reynaldo Gutierrez og Genaro Plummer. Titlar bréfanna gefa líka til kynna að þarna sé áhugavert efni á ferð. Nokkur dæmi:
Shemale wears latex lingerie
Crackking whoree gets her raavishedpak
Plumper granny lady
og síðast en ekki síst
Youngg nailedd and unabble to wallkfrom

Áður en lengra er haldið þá vil ég taka fram að allt sem ég sagði í síðustu málsgrein var kaldhæðni. En þessir bréfatitlar eru bara brot af því sem streymir inn hjá mér og ég hef ekki hugmynd hvaðan þetta kemur, byrjaði bara upp úr þurru og virðist ekkert vera að stöðvast. Það er alveg ótrúlegt hvað er til á netinu og hvað margt af því er manni bara til ama.

Segi þetta gott í bili
Farinn að læra

© Ísak Sigurjón sá um gerð og kóðun útlits, 2006






Visitor Map
Create your own visitor map!
Myspace Maps
Locations of visitors to this page